þriðjudagur, janúar 10, 2012

Nýtt ár

Nýtt ár.

Eftir að hafa baksað á móti vindstrengjum og skafrenningi á leiðinni heim úr vinnunni, hvað er betra en að koma inn í hlýjuna, hita sér kakó og borða grillað brauð með osti. Og það verður að grilla það í bakarofninum eins og mamma gerði í fyrir svo löngu þegar við krakkarnir komum inn úr snjónum.

Hræra svo saman mjöli og fræjum í brauð sem kemur ilmandi úr ofninum rétt í því þegar Jóhann Gylfi er tilbúin með skinkuhornin, það er nesti fyrir morgundaginn.

Súpan á leiðinni í pottinn þegar janúarmyrkrið skellur endanlega á. Vindhviðurnar berja á runnunum og trjánum í garðinum og við sem heima erum bíðum eftir þeim sem eru á leiðinni.

Svona er Ísland í janúar. 

miðvikudagur, september 21, 2011

Haust

Við fengum nokkra daga sumarauka um tuttugasta september eftir stysta sumar í mannaminnum. Sumarið 2011 verður sumarið sem aldrei kom og lauk snemma. Myndin er af héluðum koparreyninum í garðinum að morgni tíunda september. 

mánudagur, september 12, 2011

Stofuglugginn
Sumarið tvöþúsund og ellefu verður í minningunni sumarið sem aldrei kom og lauk mjög snemma. Eins asnalega og það hljómar. Það var svo kalt í maí að kartöflurnar voru ekki settar niður fyrr en í lok mánaðarins og ég hélt að gulræturnar ætluðu aldrei að koma upp. Grænmetisræktunin gekk svona og svona, gulrætur er það sem ég get ræktað með góðum árangri og þær líta bara vel út núna. Kál, salat og spínat spratt líka vel en tilraunaræktun með bak choy og lauk og baunir misfórst að mestu. Sorglegast var hvernig fór með sólblómin sem fóru of snemma út og frusu meira og minna. Pallurinn hjá okkur hefur verið frekar dapur og fyrir liggur núna að tæma potta og taka til í beðum fyrir veturinn.
Ég prófaði í fyrra að rækta smápabrikur í pottum inni og núna sáði ég chilipipar sem er svona ansi fínn. Það sést bara einn rauður á myndinni því ég var búin að klippa hina af en það eru nokkrir grænir sem ekki sjást eins vel. Alveg rótsterkt og gott. 
31. ágúst
Einkadóttirin varð 18. ára í lok síðasta mánaðar og bakaði þessar litríku muffins í tilefni dagsins. 
Jökulsárgljúfur 10. september 2011
 Selfoss í Jökulsá á Fjöllum.

Útsýnið upp eftir Jökulsárgljúfrum af Kallbjargi.

Fór í hreint frábæra gönguferð á laugardaginn með hóp af samstarfsfólki. Lögðum af stað um átta leytið úr Eyjafirðinum og um ellefu hófst gangan frá Dettifossi. Við byrjuðum á því að taka á okkur nokkur hundruð metra krók til að kíkja á Selfoss en síðan var gangan öll í áttina að Vesturdal þar sem við höfnuðum eftir tæpa 7 tíma ferð. Frábært veður, kyrrt, svalt og sól á köflum. Stórfenglegt landslag og náttúra.

Rúsínan í pylsuendanum var síðan roðagullið sólarlagið undan Kinnarfjöllunum þegar við stefndum aftur í vesturátt um kvöldið. 

föstudagur, ágúst 12, 2011

nálaorkering

Þetta er skemmtilegt. Fór á örnámskeið í nálaorkeringu í fyrradag. 

þriðjudagur, júlí 26, 2011

Berlín

Við hjónakornin vorum að koma heim úr fyrstu utanlandsferðinni síðan 2007. Að hugsa sér.
Fyrsta heimsókn okkar til Berlínar þar sem við dvöldum í fimm daga ásamt Gulla og Árnýju. Gengum okkur upp að hnjám og upplifðum margt og mikið.