Það er víst orðinn mánuður síðan ég bloggaði síðast og tími til kominn að láta heyra frá sér. Ýmsar ástæður eru fyrir bloggleysinu sem verða ekki tíundaðar hér en leti og tímaleysi eru ofarlega á listanum. Einnig er ég búin að vera fjarverandi og var ekki nettengd um tíma. Dvaldi m.a. hjá yngstu systur minni sem þó að hún eigi þrjár!! tölvur er ótengd umheiminum. Ekki skil ég hvernig það er hægt nú á tímum.
En nú í augnablikinu er ég heima hjá mér og er að bíða eftir því að skordýraþættinum á Rúv ljúki. Get ekki með nokkru móti horft á þessa þætti, sem eru alveg örugglega frábærir. Mig bara klæjar!
En nú í augnablikinu er ég heima hjá mér og er að bíða eftir því að skordýraþættinum á Rúv ljúki. Get ekki með nokkru móti horft á þessa þætti, sem eru alveg örugglega frábærir. Mig bara klæjar!
Ummæli
Skrifa ummæli