Við hjóluðum á kjörstað í morgun og greiddum atkvæði. J.G. fékk að koma inn í kjörklefann og ég sýndi honum hvað maður gerir þar.
Mamma segir alltaf að það sé tvennt sem pabbi hafi kennt börnunum sínum, þ.e. að gera skattaskýrsluna og að það eigi að nýta kosningaréttinn skilyrðislaust. Pabbi á afmæli í dag þannig að til þeirra mömmu fórum við í kosningakaffi.
Ég kaus fyrst í sveitarstjórnarkosningum og þá var óhlutbundin kosning í Hrafnagilshreppi hinum forna. Það er eina skiptið sem að pabbi hefur haft einhver áhrif, eða öllu heldur mamma því hún taldi upp fyrir mig nöfnin á þeim sem ég átti að kjósa (ég hafði með mér miða). Næst kaus ég í alþingiskosningum, utan kjörstaða en þá var ég búsett í Reykjavík. Þá höfðu pabbi og mamma engin áhrif á það sem ég kaus og hafa ekki haft síðan. En ég kaus samt og hef aldrei skilið fólk sem ekki kýs, segir kannski bara að það séu einhverjir aðrir sem eigi að sjá um það. Við sem erum svo lánsöm að búa í lýðræðisþjóðfélagi og höfum rétt til að velja eða vera sjálf í framboði eigum að sjálfsögðu að nýta okkur þennan rétt. Annað er lítilsvirðing, í fyrsta lagi fyrir alla þá sem börðust fyrir þessum réttindum sem okkur þykja sjálfsögð og í öðru lagi fyrir aðra í heiminum sem ekki hafa þau. Konur til dæmis í alltof mörgum ríkjum.
Mér þykir verst að á næsta ári eru alþingiskosningar og tvíburarnir verða ekki átján fyrr en í ágúst og verða því ekki komnir með kosningarétt.
Hér sést heimasíða Eyjafjarðarsveitar og ef framboðslistar eru skoðaðir sést nokk hvað ég hef exað við.

Ummæli
Skrifa ummæli