Við fórum í berjamó um helgina og í kvöld hafði ég mig í það að búa til saft úr öllum krækiberjunum sem tínd voru.
Halldór var búinn að gera bragðpróf á berjum og kvað upp úr með að Svarfdælsku krækiberin væru öðruvísi á bragðið en þau sem tínd voru hér í framfirðinum. Ég ætlaði nú ekkert að hafa hátt um það að hafa farið út í Svarfaðardal að tína krækiber. Ég tíndi auðvitað líka og aðallega aðalbláber. Ég geri hrásaft og krakkarnir eru öll mjög sólgin í hana. Það urðu níu lítrar í kvöld. Uppskriftin er einföld:
Krækiberjasaft
Berin eru pressuð í þar til gerðri berjapressu sem sett er framan á hakkavél. (sem ég að vísu fæ lánaða hjá mömmu). Saftin síuð og mæld og í 1 lítra eru settar 2 msk af vínsýru og 4-500g sykur - leyst upp og sett á flöskur. Blandað með köldu vatni að smekk hvers og eins.
Ég lofaði að setja inn uppskrift af Sólberjahlaupi. Venjulega þegar ég geri hlaup og það er sama uppskriftin sama hvort um er að ræða ribs, sólber eða hrútaber:
Berin eru soðin í smávegis af vatni, ca dl á kíló eða eitthvað, þangað til þau eru sprungin. Hratið sigtað frá og saftin mæld. 800 g af sykri sett í hvern lítra og hitað soðið smástund. Stundum set ég hleypi en þess þarf ekki alltaf.
Ég smakkaði chilihlaup með sólberjum sem var skrambi gott og skelli því hér með. Fór svo að lesa uppskriftina og komst að því að sólberin eru kannski óþörf viðbót! En hér kemur hún samt:
3 rauðar pabrikur
11 rauðir chilibelgir
1 1/2 bolli borðedik
5 1/2 bolli sykur
3 tsk sultuhleypir
1 1/2 bolli sólber
Hreinsið kjarnan úr chili og pabriku og maukið í matvinnluvél. Maukið sett í pott ásamt sykri, ediki og sólberjum og soðið í 10 mín. Þá er sultuhleypir settur ít í ein tsk í senn og hrært vel á milli. Látið sjóða í 1-5 mín.
Skelli í lokin með uppskrift af sólberjasultu sem mér finnst áhugaverð því ég bý yfirleitt bara til hlaup:
1 kg sólber hreinsuð
800g sykur
soðið stutt og maukað með töfrasprota eða í matvinnsluvél. 1 msk vínsýra í kg.
Punktur og basta í dag.

Ummæli
Skrifa ummæli