Það er að verða langt á milli skrifa hjá mér. Ég verð að bæta úr því eða hætta þessu alveg. Hm..
Nú er ég rétt dottin inn úr dyrunum eftir fimm daga dvöl á Reykjum í Hrútafirði með krakkana mína í 7. bekk. Mjög skemmtileg vika í alla staði. Ég er að vísu hálf lúin og fer örugglega snemma í háttin í kvöld. Ætla að njóta þess að liggja í leti fyrir framan sjónvarpið og horfa á Taggart.
Fjarvera húsmóðurinnar hefur ekki breytt miklu hér á heimilinu. IH hefur sýnilega tekið til hendinni í þvottahúsinu og sjænað þar til. Því miður finnst henni ekkert gaman að vaska upp eða ganga frá í eldhúsinu.

Ummæli
Skrifa ummæli