Við hjónakornin skruppum örferð til höfuðborgarinnar um helgina. Flugum suður seinnipartinn á föstudag svo seint að við höfðum rétt tíma til að hendast upp á hótelherbergi og skipta um föt. Við fórum svo með vinnufélögum JÓH austur á Eyrarbakka og borðuðum humar (sumir völdu frekar lambasteik!!!) meðan við hlustuðum á Borgardætur. Þetta var semsagt í Rauða húsinu á Eyrarbakka.
Loksins erum við búin að fá mat þar en þetta var okkar önnur tilraun til þess. Í sumar fórum við þarna við áttunda mann og ætluðum að gæða okkur á e-um sjávarréttum þegar yngsta fjölskyldumeðlimnum varð mjög skyndilega mjög illt í maganum. Hann kastaði upp yfir sjálfan sig og borðið þannig að við drifum hann í burtu. Ferðafélagar okkar urðu eftir og fengu sinn mat eftir að staffið hafði af miklu fumleysi og án þess að láta sér bregða hreinsað upp og lagt á borð upp á nýtt(á augabragði).
Við urðu ekki fyrir vonbrigðum, hvorki með matinn né annað. Frábær staður.
Á laugardaginn fórum við í Ikea eins og allir, hittum einn kunningja á leiðinni,sem varð að orði að við værum nú bara fyrstu Norðlendingarnir sem hann rækist á, merkilegt nokk.
Það eina sem mér datt í hug að kaupa var auðvitað ekki til!!!

Ummæli
Skrifa ummæli