Við horfðum auðvitað á Gettu betur í gærkvöldi. Ekkert endilega til að fylgjast með keppninni heldur hækkuðum við í sjónvarpinu þegar kom að skemmtiatriðunum. Þar var frumburðurinn (Úlfar fæddist á undan) að spila með félögum sínum. Þeir bjuggu til nafn á bandið að þessu tilefni, enda að koma fram opinberlega í annað skipti og það í sjónvarpinu.
Ég hitti hann hérna heima eftir hádegið í gær þegar hann var að taka sig til, skella geli í hárið og bursta spariskóna. Þegar ég fór að tala við hann um smink og þ.h. uppgötvaði hann skyndilega að hann væri að fara að koma fram í sjónvarpi.
En þeir voru flottir.

Ummæli
Skrifa ummæli