.jpg)
Músaveiðar maddömunar eru farnar að valda öðru heimilisfólki hugarangri. Til dæmis svaf heimasætan illa í nótt var trufluð af slæmum draumförum sem snerust um músaveiðar í þvottahúsinu.
Um síðustu helgi fóru 4/6 hlutar fjölskyldunnar í Borgarnes og skildum við unglingana eftir heima til að gæta húss og kattar. Á laugardagskvöldið, seint, fékk JÓH upphringingu frá elsta syninum.
Þeir bræður höfðu haft það náðugt fyrir framan sjónvarpið þegar þeir veittu því athygli að maddaman stóð fyrir framan innbúið úr þvottahúsinu sem er í stafla á ganginum þessa dagana. Hún tiplaði fram og aftur og veifaði skottinu. Við nánari athugun kom í ljós að óvelkominn gestur var kominn í heimsókn. Upphófs nú æðislegur eltingaleikur um allt hús sem endaði inni í herbergi hjá öðrum unglingnum og þar tókst þeim loks að handsama músina og koma henni fyrir. Morðvopnið var þykkur líffræðidoðrantur. Á eftir fengu þeir hálfgert samviskubit yfir öllu saman og fóru út í kartöflugarð, bak við hús og grófu líkið. Þetta var á seinni tímanum í miðnætti á laugardagskvöldið og veltum við því fyrir okkur hvað nágrannarnir hafi hugsað. Vonandi hafa allir verið farnir að sofa.
Músaveiðarinn okkar ferfætti var auðvitað frekar móðgaður. Við hin vorum fegin að hafa ekki verið heima.
Ummæli
Skrifa ummæli