Ég átti afmæli á pálmasunnudag þetta árið og það gerist víst ekki aftur næstu hundrað og sextíu árin. Það er annars fínt að hafa páskafríið svona snemma. Ég var alveg tilbúin fyrir afslöppn í nokkra daga.
Undanfarið hef ég velt því dálítið fyrir mér hvort ég ætti að henda þessari bloggsíðu eða halda henni. Maður spyr sig svolítið um tilganginn með þessum skrifum. Svo er ég búin að vera svo löt við að halda síðunni við á þessu ári. Ég er eins og allir bloggarar hégómagjörn og pínulítið athyglissjúk. Samt er mér ekki alveg sama hver les og því er þessi síða ósýnileg að því leyti að það er ekki hægt að "gúgla" hana.
Ég ætla ekki alveg að hætta með síðuna, ekki í bili að minnsta kosti.

Ummæli
Skrifa ummæli