
Í morgun þegar ég renndi mér á hjólinu í vinnuna fann ég sem snöggvast daufa haustlykt. Rétt svona til að minna á að það er að verða kominn miður ágús og stutt í fyrstu næturfrost.
Við skruppum í berjamó í gær og tíndum svona um það bil fimm lítra af bláberjum. JG var líka duglegur en þegar það var komin góð botnfylli í skyrboxið hans settist hann niður og tíndi allt upp í sig og byrjaði svo upp á nýtt. Berin bíða inni í ísskáp en maturinn í gærkvöldi samanstóð af ábrysti (sem ég keypti á markaðnum) með mjólk og kanil og steiktum lerkisveppum með afgangnum af lambalærinu frá því í fyrradag. Ekki alveg ljóst hvað var með hverju.
Í kvöld þarf ég að fara snemma að sofa því ég fékk frí í aðal vinnunni minni til að fara einn hring í aukavinnunni, þann næst síðasta á þessu sumri.
Hádegisblóm er uppáhaldsblómið mitt.
Ummæli
Skrifa ummæli