Janúar 2010
Gaman að setja þessa mynd á bloggið núna 25. janúar. Hún er tekin fyrir rúmum mánuði síðan, um jólaleytið þegar allt var á kafi í snjó. Jóhann var ekki fyrr búinn að setja jólaseríur á tré, runna og þakskegg en að allt fennti í kaf og litlu plastjólasveinarnir okkar (eru bara um 30 cm) hurfu í margar vikur. Núna er allur snjór horfinn af pallinum og orðið nánast autt í garðinum. Sunnanhvassviðri í dag en við höfum verið blessunarlega laus við rigningu. Hátt í fimmtán stiga hiti.
Ummæli
Skrifa ummæli