Ákvað að byrja bara í sumarfríi í dag.
Fór í gær í fyrstu ferðina, þjóðverjar í Goðafoss og Laufás auk lystigarðsins á Akureyri. Það var mjög gott veður og allir ánægðir. Ég held samt að leiðsögnin hafi farið svona fyrir ofan garð og neðan. Blessuð stúlkukindin sem ég var með sem túlk talaði ekki mjög mikla ensku og var að auki ekkert sérlega vel að sér. Þá á ég við að hana vantaði gjarnan orð á sínu eigin tungumáli. Þannig að ég sleppti ýmsu, reyndar ansi mörgu. En hún var öll af vilja gerð greyið og ég gat klóraði mig fram úr þeim spurningum sem ég fékk sjálf á þýsku. Er bara alveg skolli góð í þýsku ef ég legg mig fram.
Spjallaði lengi við hjón sem höfðu komið hér fyrir fimm árum. Þau báðu mig auðvitað að segja Eyjafjallajökull. Þar er spurning sumarsins komin.

Ummæli
Skrifa ummæli