Sumarið er allt í einu liðið og í minningunni verður það gott sumar eins og sumur yfirleitt. Veðrið er svosem ekkert aðalatriði. Við eyddum til dæmis einni viku í rigningu á Héraði byrjun júlí, en það var samt ágætis veður allan tímann. Einn góðviðrisdaginn í júlí skelltum við hjónakornin okkur í fjallgöngu og klifum Bóndann. Fjallið sem blasir við beint út um eldhúsgluggann hjá okkur 1350m annað hæsta fjallið í röðinni á eftir Kerlingu. (auðvitað er hún hærri, 1583m)
Við ókum áleiðis upp í Grísarárhólfið (skógræktina) og gengum þaðan. Fórum nánast beint af augum og gekk bara bærilega. Dálítið bratt en óskaplega fallegt, mikil litadýrð í öllu grjótinu og býsna mikið gróið alveg upp á topp. Þá er bara Kerlingin eftir og gaman væri að ganga á hana og svo tindana í norður og enda á Súlum. Það er á planinu.
Ummæli
Skrifa ummæli