Mikið er gott að geta með góðri samvisku slakað á í nokkra daga. Enda "af hverju ætti maður svosem alltaf að vera að gera eitthvað" svo ég vitni í góða vinkonu.
Ég var að hugsa um að skrifa smá samantekt á árinu sem er nú næstum liðið. Fannst til að byrja með ekki mikið hafa á dagana drifið en við nánari athugun...
Við uppgötvuðum að einkadóttirin er orðin fullorðin, hún er til dæmis farin að keyra bíl eins og hún hafi aldrei annað gert. Annar tvíburinn útskrifaðist með stúdentspróf í vor og er nú á vinnumarkaði í vetur meðan hann hugsar næstu skref. Litli prinsinn var kúasmali í sveit í sumar og virtist lítið sakna foreldra sinna. Hann er líka að verða stór. Fékk ekkert dót í jólagjöf (utan einn tölvuleik). Við sjáum fram á að verða ein í kotinu innan fárra ára. Við fögnuðum 25 ára stúdentsafmæli með stæl í vor og alltaf finnst manni merkilegt hvað skólafélagarnir hafa elst lítið/mikið. Snemmsumars (2. júní 2010) voru líka tuttugu ár síðan við giftum okkur við JÓH á laugardegi fyrir hvítasunnu árið 1990 í glampandi sól og hita. Síðan þá hefur alltaf verið sólskin...
Að sönnu var lítið um fjárfestingar, framkvæmdir eða löng ferðalög á árinu. Ekki til útlanda a.m.k. Enda teljumst við til millistéttarinnar sem er að borga skuldir sínar (og...) og tekur á sig launaskerðingu og skatta/verðlagshækkanir án þess að mögla. Keyrum því enn á gömlum bílum og verðum líklega að leggja öðrum í sparnaðarskyni eftir áramótin. En við ræktuðum kál og rófur í "laukagarðinum" bak við hús, matlaukurinn náði því miður ekki þroska í ár, og tíndum ber og sveppi í haust. Fyrir utan allan prjóna- og saumaskapinn sem notaður var til að drýgja tekjurnar á sumarmarkaði. Og tókum svo slátur í haust. En málið er að alla þessa hluti höfum við alltaf gert líka þegar allt var á fullri ferð og það þótti ekki smart að prjóna eða borða innlenda framleiðslu og hananú.
Við leyfðum okkur þó að fara í eina langferð í sumar og prófuðum ýmsa kosti íslenskarar ferðaþjónustu í kringum landið. Borðuðum til dæmis frábæran humar á Hornafirði en fengum að sama skapi mjög eftirminnilega þjónustu í Löngubúð á Djúpavogi. Segi ekki meir. Mælum með Bókakaffinu í Fellabæ og Kaffihúsinu á Hvolsvelli sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. Við komum líka við í Fjallakaffi í Möðrudal og Borgum í Dimmuborgum, gott á báðum stöðum. Gistum í sumarbústað, tjaldi og hyttu á tjaldstæði, einnig á ferðaþjónustubýli í Svínafelli í Öræfum þar sem JÓH var trakteraður með frönsku heimabruggi fyrir svefninn. Fyrir fólk sem er ekki vant brimgný og fuglagargi mæli ég ekkert sérstaklega með tjaldstæðinu í Vík í Mýrdal en staðinn er að öðru leyti gaman að heimsækja og tjaldstæðið mjög flott (mér bara kom ekki dúr á auga). Ég verð líka að nefna að við fórum í siglingu um Jökulsárlón sem var eftirminnileg og skemmtileg og heimsóttum Þórbergssetrið á Hala sem við mælum með. Aldrei þessu vant var ekki farið neitt akandi á fjöll, ekki einu sinni í bað í Laugafelli og verður snarlega bætt úr því þegar fært verður í vor.
Fjallganga ársins var á fjallið okkar Bóndann og einnig gengum við á Blátind með hópi skólafélaga í tengslum við stúdentsafmæli. Hjóluðum líka dálítið um sveitina en áramótaheitið í ár er að nýta nú almennilega út úr sundkortunum sem vinnustaðurinn minn er svo rausnarlegur að láta fylgja með jólakortinu. JÓH er á Bjargi, alla daga eða þannig.
Við njótum þess að eiga góða að, vera heilsugóð og eiga hraust og dugleg börn. Við höfum þak yfir höfuðið og atvinnu. Höfum nóg að borða og getum veitt okkur það að fara í leikhús/bíó/tónleika einstaka sinnum. En höfum líka tíma til að sinna áhugamálunum og skemmta okkur með góðu fólki.
Það þýðir ekkert að reyna að elta uppi hamingjuna. Hún kemur til þín, innan frá.
Gleðilegt nýtt ár

Þetta hefur verið gott ár sýnist mér á öllu og er það gott:) Gleðilegt ár gamla vinkona,heilsaðu fólkinu þínu og njóttu þín áfram.kv.úr Cary,Svanfríður.
SvaraEyðaúpps,athsemdin mín kom ekki inn...en gaman að lesa um árið þitt og á hvað daga þína hefur drifið. Gleðilegt ár og ég óska þér og þínum alls hins besta á nýju ári. Heilsaðu heim til þín. Kv. úr Cary,Svanfríður.
SvaraEyða