Komin heim úr vinnunni þennan fjórða vinnudag ársins og er að hugsa um að spá snjóavetri. Veðrið var ekki alveg eins vont og ég hélt, ekki eins hvasst að minnsta kosti en ég er samt ósköp fegin að vera komin inn í hlýjuna aftur. Búin að stinga "jólatrénu" í samband þennan síðasta dag jóla (ég set það innan gæsalappa því auðvitað stakk ég jólatrésseríunum í samband ekki jólatrénu sjálfu) og kveikja á kertum.
Mest freistandi er að stinga sér undir teppi og kveikja á sjónvarpinu og horfa á bylinn út um stofugluggann. Vona svo að afganginum af fjölskyldunni gangi vel að komast heim úr vinnu og skóla seinnipartinn.
Áramótaheitin eru ekki enn komin niður á blað en þau eru hefðbundin. Samt, á endanum eru það geðorðin sem koma fyrst upp í hugann.
Hugsaðu jákvætt og flæktu ekki líf þitt að óþörfu.
Ummæli
Skrifa ummæli