Þegar bókastaflinn var farinn að flæða út á gólf, tók ég til á náttborðinu. Söguþættir landpóstanna sem verið hafa á náttborðinu og gólfinu síðan um jól fengu stað uppi í hillu ásamt mörgu fleiru. En þetta er bunkinn sem varð eftir:
- Íslensk matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur
- Sturlunga - fyrsta bindi
- Harry Potter and the deathly hollows (verður þarna þar til ég er búin að fara á síðustu myndina).
- Nýjasta bókin hans Braga Ólafs, þessi með langa titlinum. Er að byrja aftur á henni og ætla að klára núna.
- Lítil bók með dönskum jólasögum - í láni frá mömmu.
- Skíma málgagn móðurmálskennara
- Myndin er svarthvít því Inga H. var að fikta eitthvað í myndavélinni!

Ummæli
Skrifa ummæli