Setti þennan pistil á facebook um daginn.
Var að glugga í heimasíður framhaldsskóla á Íslandi. Kom mér á óvart hvað margir skólar eru ekki með neinar upplýsingar á erlendum tungumálum á síðunum. MA sker sig úr með upplýsingar á fjórum tungumálum á sinni heimasíðu. VMA er líka með ágætar upplýsingar um skólann og námsframboð á ensku sem og fleiri eins og Verzló og Kvennó. Einn skóla fann ég sem er með upplýsingar á pólsku sem og ensku en það er Flensborgarskólinn í Hafnarfirði. MR er ekki með neinar upplýsingar um skólann á ensku og sker sig úr með þannig heimasíðu að ég hélt að ég hefði lent inn á einhverri gamalli slóð.

Ummæli
Skrifa ummæli