Setti mér það markmið í byrjun sumars að lesa bækur úr bókaskápnum sem ég hef ekki lesið lengi. Fyrsta bókin sem ég las var "Meðan nóttin líður" eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur. Bók sem ég er búin að eiga býsna lengi og mundi hreinlega ekki eftir að hafa lesið. Hreint frábær bók sem ég má ekki gleyma að ég eigi. Núna er ég að pæla í gegnum Douglas Adams, keypti einhverntíman allar puttaferðalagssögurnar (Hitchikers guide to the galaxy) í stórbók. Mjög skemmtilegt. Nokkrir reyfarar hafa að vísu ratað á náttborðið misjafnir að gæðum. Ég keypti einn á leiðinni út um daginn sem ég henti þegar ég kom heim. Mér er alveg sama þó að um reyfara sé að ræða það er lágmarkskrafa að bækur séu almennilega prófarkalesnar og þýðingar á læsilegri íslensku. Ég keypti líka aðra kilju í bókabúðinni í Leifstöð öllu merkilegri en ég er því miður hrædd um að ég hafi týnt henni á leiðinni. Það er Snaran eftir Jakobínu Sigurðardóttur. Alveg magnaður texti sem ég náði að glugga aðeins í, í flugvélinni. Áhugavert að velta fyrir sér þjóðfélaginu á þeim tíma sem sagan er skrifuð (gefin út 1968) í samanburði við nútímann.
Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

Ummæli
Skrifa ummæli