Fara í aðalinnihald
Stofuglugginn
Sumarið tvöþúsund og ellefu verður í minningunni sumarið sem aldrei kom og lauk mjög snemma. Eins asnalega og það hljómar. Það var svo kalt í maí að kartöflurnar voru ekki settar niður fyrr en í lok mánaðarins og ég hélt að gulræturnar ætluðu aldrei að koma upp. Grænmetisræktunin gekk svona og svona, gulrætur er það sem ég get ræktað með góðum árangri og þær líta bara vel út núna. Kál, salat og spínat spratt líka vel en tilraunaræktun með bak choy og lauk og baunir misfórst að mestu. Sorglegast var hvernig fór með sólblómin sem fóru of snemma út og frusu meira og minna. Pallurinn hjá okkur hefur verið frekar dapur og fyrir liggur núna að tæma potta og taka til í beðum fyrir veturinn.
Ég prófaði í fyrra að rækta smápabrikur í pottum inni og núna sáði ég chilipipar sem er svona ansi fínn. Það sést bara einn rauður á myndinni því ég var búin að klippa hina af en það eru nokkrir grænir sem ekki sjást eins vel. Alveg rótsterkt og gott. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.