Fara í aðalinnihald

Við póstkassann

Á leiðinni heim úr vinnunni staldra ég gjarnan við póstkassann. Eftir að við hættum að kaupa Morgunblaðið er hann að vísu stundum tómur, en það þarf samt að gá.
Í dag var ég svo heppin að rekast á landpóstinn sjálfann og rétti hann mér Bændablaðið og Vikudag ásamt gluggabréfi út um bílgluggann.
Þegar pabbi fór að keyra mjólkurbíl um nítjánhundruð og sjötíu! var hann ekki bara að ná í mjólkurbrúsa á brúsapalla í Hrafnagilshreppi. Hann var líka póstur. Við fengum þ.a.l. öll aukablöðin í nokkur ár einmitt um það leyti sem ég var að læra að lesa. Hann bar út póstinn um leið og hann skilaði brúsunum og þar sem ekki var póstkassi stakk hann samanvöfðum blöðum og bréfum undir hankann á brúsalokinu.
Mér varð hugsað til þessa tíma þegar ég hitti Landpóstinn okkar í dag því þó það séu liðin meira en fjörtíu ár frá því pabbi var póstur er enn hafður sami háttur á pósflokkuninni, hver bær eða hús hefur sinn vasa á löngum dregli sem er rúm dagblaðsbreidd. Þegar búið er að flokka allt er renningnum rúllað upp og bundið fyrir.  Í framsætinu á póstbílnum voru nokkrar svona rúllur í dag, saumaðar úr einhverju níðsterku efni þó að tæplega séu það sömu og fyrir fjörtíu árum.
Það er engin þörf á því að breyta því sem virkar vel.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.