Svona var umhorfs hér í Brekkutröðinni í morgun.
Maddama Blíða þurfti að taka ein fjögur tilhlaup til að komast út í gærmorgun en hefur ekkert lagt það á sig í dag. Svona lét hún fara vel um sig í gærkvöldi.
Í frystikistunni leyndust nokkur tólgarkerti sem brenna með kyrrlátum loga og notalega hátíðlegt að horfa á.
Enginn skóli í gær föstudag og manni finnst því vera sunnudagur í dag. Meðan snúðarnir voru að hefast og bakast las ég eina af bókunum sem ég greip með mér af safninu í vikunni. Hún heitir "Að endingu" og er eftir Julian Barnes. Endirinn kom pínu á óvart og því fletti ég aftur á fyrstu síðuna og blaðaði í upphafinu aftur. Hm.. jahá einmitt... Mæli með henni ekki löng en heillandi lesning og vel þýdd.

Ummæli
Skrifa ummæli