Hérna kemur loksins myndin sem ég var að brasa við um daginn.JG fékk að fara út að leika sér í dag á leikskólanum, búinn að fá nýjan útigalla. Enda vaknaði hann fyrir allar aldir, hlakkaði svo til. Ég held að vísu að hann hafi bara verið í pollagallanum það er búin að vera hláka í dag því miður.
Ég keyrði með strákana upp í Fjall í gær á bretti, það var eiginlega þoka uppfrá og hálf leiðinlegt skyggni. Þeir létu sig nú hafa það og komu blautir heim.
Í dag fékk ég skyndilega það á tilfinninguna að ég þyrfti að fara að gera eitthvað í jólaundirbúningi. Ég veit ekki alveg hvað olli þessu og ég er ekkert farin að gera í því ennþá. Spurning hvort maður á að fara að baka eða föndra. Ég var nú búin að hugsa mér að snúa á kaupæðið sem virðist hafa heltekið landann, þó að það sé ekki kominn miður nóvember og hafa heimatilbúnar jólagjafir þetta árið. Fékk meira að segja hugmynd að mjög ódýrum gjafapappír. Hmm...
Ummæli
Skrifa ummæli