Fara í aðalinnihald

Annar í páskum


Jæja þá eru þessir páskar að líða hjá. Ég er búin að vera svo dugleg að ég sá enga ástæðu fyrir að vera með samviskubit yfir því að kúra lengi dags í nýja rúminu og lesa Harry Potter og blendingsprinsinn (í annað sinn(á ensku auðvitað- þarf að æfa mig í að hugsa á ensku!)). Við máluðum hjónaherbergið, keyptum nýtt rúm og minnkuðum við okkur um 48 cm eða þar um bil. Nú verður litli prinsinn á heimilinu að sofa í sínu rúmi framvegis. Ég saumaði líka nýjar gardínur og keypti púða í stíl svona til að fullkomna umskiptin. Fyrst ég var byrjuð á gardínunum fékk Halldór mig til að kaupa og sauma nýja gardínur fyrir herbergisgluggann hjá sér og Inga Hildur fékk líka nýjar gardínur en hún keypti tilbúna vængi sem ná niður á gólf en hún bindur upp á einhvern óskiljanlegan máta og finnst auðvitað "oggisslega" flott. Ég eyddi líka einum degi í að slá inn verkefni sem skila á næsta laugardag og við vorum búin að vinna að mestu í hópnum sem ég er í og svo skrapp ég í Mývatnssveitina með SBA og Þorvaldi sem var bæði gagnlegt og gaman. Nú fara næstu þrjár vikur í það að kvíða fyrir munnlega prófinu sem er 6. maí. ehem.
Myndin sem skreytir þessa færslu er tekin um hálf níu á laugardagsmorguninn. Við vöknuðum fyrir allar aldir eins og venjulega og uppgötvuðum að ekki var til matarbiti í húsinu. Ekkert spennandi í morgunmat allavegana. Þannig að við skutumst í bæinn og í Bakaríið við brúna og keyptum ýmislegt gómsætt fyrir. Við vorum lengur á leiðinni því að veðrið var svo sérstakt og margt að mynda á leiðinni. En JÓH var að kaupa sér nýja(notaða) myndavél. Ég á nú eftir að stela henni.

Ummæli