Myndin er frá Hveraröndinni í Námaskarði.Ef rýnt er má sjá holu sem sem er fótspor eftir ógæfusamann ferðamann sem eyddi afgangnum af sumarfríinu á spítala. Þetta og ýmislegt annað skemmtilegt fræddist ég um í gær þegar ég fékk að fljóta með sem "assistant" í Mývatnstúr.
Mæli hiklaust með því að fólk geri sér ferð þarna austur að vetrarlagi því stórbrotin fegurð náttúrunnar nýtur sín ekki síður að vetrarlagi. Svo er alveg gráupplagt að fara í bað í Jarðböðunum í leiðinni. Við skruppum þarna fjölskyldan á föstudaginn langa í fyrra (ekki í píslargönguna þó) .
Ummæli
Skrifa ummæli