Dreif mig af stað um fimmleytið út í Krossanesborgir þar sem leiðsögumenn voru búnir að mæla sér mót við Sverri fuglaáhugamann númer eitt hér á svæðinu. Hann rölti með okkur um borgirnar vítt og breitt og benti okkur á fugla. Við komum til dæmis auga á tvo flórgoða sem eru ekki varpfuglar á þessu svæði og ég held bara að ég þekki núna í sundur þrjár mávategundir. Það var heldur kalt en mjög gaman að öðru leyti.
Þegar ég kom heim voru börnin orðin frekar svöng en höfðu tekið til hendinni. "Litla barnið" fór og lagaði til í hjónaherberginu og lagði m.a. náttfötin hennar móður sinnar mjög snyrtilega á rúmið hennar megin. hann er samt ekkert fyrir að taka til í sínu eigin herbergi.

Ummæli
Skrifa ummæli