Jamm og jæja. Þá er Júróvisjón búið þetta árið. Lagið sem ég kaus vann. Mér fannst hvorki finnska lagið né það sænska (voða líkt mjög gömlu Bay City Rollers lagi sem mamma á á plötu) skemmtilegt, þannig að ég sveik lit og kaus Austur-Evrópuþjóð.
Ég er alveg sammála þeim sem vilja breyta fyrirkomulaginu á keppninni. En ég er ekki viss að það sé rétt að skipta undankeppninni í austur, vestur.
Svo var það kosningasjónvarpið. Við gáfumst upp á Rúv fljótlega, það voru svo mikil læti og verið að reyna að gera allt í einu. Á stöð tvö var til dæmis gefið upp á skjánum hvenær tölur voru væntanlegar en rúv klippti bara á það sem var að gerast og skellti upp tölunum, skipti svo beint aftur án þess að skoða nokkuð hvað gerst hafði eða ekki. En grafíkin er alltaf flottari hjá Rúv.
Ég vona svo bara að við fáum nýtt ríkisstjórnarsamstarf sem fyrst. Verst að það verður að öllum líkindum með sjálfstæðisflokknum í forsæti.

Ummæli
Skrifa ummæli