Gleðilega hátíð.Myndin hér að ofan tengist 17. júní ekki neitt. Ég fann hana á vélinni áðan þegar ég var að setja myndir dagsins inn í tölvuna. Halldór viðurkenndi að hafa laumast til að smella af einhverntímann í síðustu viku þegar ég og heimilskötturinn fáum okkur síðdegisblund. Eins og sjá má til hægri er ég í miðju kafi við að brjóta saman þvott. Ástandið hérna á heimilinu undanfarið hefur verið þannig að ég var alveg hætt að skilja hvaðan allur þessi þvottur kom. Og að nokkur á heimilinu gæti fundið nokkuð inni í skáp hjá sér að fara í var mér ráðgáta. Það var allt á, við, undir og ofan á strauborðinu. Er nema von að ég hafi liðið út af af þreytu eftir öll húsverkin.
Þetta er allt að koma og húsmóðirin í Brekkutröðinni ekki alveg eins aðframkomin eins og undanfarinn hálfan mánuð. Ég sé fram á viku sumarfrí og ætla að taka til hendinni við vor og jólahreingerningarnar. Eða vinna í garðinum, fer eftir veðri.
Ég vaknaði samt í morgun með kvíðahnút í maganum. Dreymdi í morgunsárið að ég væri á leiðinni á annað landshorn til að halda aðra fermingarveislu fyrir einkadótturina. Ég vissi ekki alveg af hverju því það átti eiginlega eftir að bjóða í veisluna fyrir utan að allt sem gleymst gat hafði orðið eftir heima. Mér leið hálf ónotalega þegar ég vaknaði.
Dagurinn var eins og 17. júní á að vera. Byrjaði að vísu óvenjulega því við mamma skruppum niður í Leifstaðabrúnir og fórum í plöntuskoðun með leiðsögn Harðar Kristinssonar. Í dag er nefnilega dagur hinna villtu blóma. Við sáum Maríulykil og margar fleiri algengar og sjaldgæfar plöntur. Eftir hádegið fórum við í bæiinn, náðum restinni af skrúðgöngunni. Strákarnir voru eins og oft áður að spila. Eftir að hafa beðið með JG í hoppukastalabiðröð og keypt candyfloss fórum við á Bílasýninguna sem var í Boganum (mjög vel heppnuð) og enduðum í kaffi hjá Imbu áður en við fórum heim. Ég að elda hátíðarmat en JÓH að vinna í garðinum. Handbolti í eftirmat.
Svona er nú það.
Ummæli
Skrifa ummæli