JG vaknaði snemma í morgun og kom til að kúra undir sænginni hjá mömmu og pabba. "það verður skemmtilegur dagur í dag".
Þeir feðgar drifu sig svo fljótlega í "Dalinn" til að eyða deginum á dráttarvél með skítadreifara í eftirdragi.
Ég og einkadóttirin tókum til hendinni í hefðbundinni laugardagshreingerningu. Mér þykir ekki skemmtilegt að skúra svo ég verðlauna mig með því að sitja smá stund við tölvuna og skríð svo inn í stofu með prjónana og horfi á einhverja skemmtilega mynd í rólegheitunum. Með tebolla við hendina. Nýt þess að vera ótrufluð.
Svo ætlum við að drífa okkur í leikhús í kvöld hjónakornin.

Ummæli
Skrifa ummæli