Maddama Blíða nýkomin úr baði.
Jóhann Gylfi er veikur í dag og ég er heima til tíu. Hangi náttúrulega í tölvunni á meðan og fann þá þessa skemmtilegu mynd sem er tekin einhverntíman í vor. IH tekur sig til annað slagið og baðar maddömuna við litla hrifningu eins og sjá má á svipnum. Segiði svo að kettir séu karakterlausir.
Ummæli
Skrifa ummæli