

Sá þetta sérstaka teppi á Knitty.com og vegna þess að það var að fæðast lítill frændi á dögunum þá dreif ég mig í það að prjóna það.
Efri myndina tók ég áður en búið var að þvo og strekkja teppið. Svo stillti JG sér upp fyrir mig með það yfir sér. Það varð alveg í stærsta lagi en þetta var skemmtilegt og auðvelt og aldrei að vita nema ég prófi þessa uppskrift aftur við tækifæri.
Ummæli
Skrifa ummæli