Fara í aðalinnihald

Sunnudagsmorgun 12. október 2008



Vaknaði snemma þennan sunnudagsmorguninn.
Gærkvöldið ennþá í eldhúsinu í óþvegnum glösum og kaffibollum, matarlykt í loftinu. 29 meðlimir stórfjölskyldunnar í mat og lambi slátrað af því tilefni, soðið og steikt. Góð og nærandi stund í samvistum við þá sem standa manni nærri. Mikið hlegið en líka grátið.

Það var gott að eiga kyrrláta stund í kirkjunni í morgun. Haustið úti fyrir, snjóföl á fjallatoppunum en birkitrén í garðinum ennþá hlaðin sölnuðum laufblöðum,. Sólargeislarnir sem skinu inn um litlu lituðu rúðurnar í kirkjugluggunum vörpuðu hlýrri birtu yfir kertaljósin og andlit fólksins. Hljómmikil rödd prestsins, hughreystandi. Söngurinn auðvitað yndislega fallegur.

Láttu nú ljósið þitt,
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesú mæti.

Eins láttu ljósið þitt
lýsa í hjarta mitt,
skína í sál og sinni
sjálfur vaktu þar inni.

Lát húmið milt og hljótt
hlúa að mér í nótt
og mig að nýju minna
á mildi arma þinna.

Ég fel minn allan hag
einum þér nótt og dag,
ljósið af ljósi þínu
lífi í hjarta mínu.

Ummæli

  1. Hæ hæ Kata.

    Vissi ekki af bloggsíðu þinni, gaman að vita af henni. :)
    Mikið var þetta einlægur og yndislegur pistill. Heilmikið hugarró í honum.
    Hlakka til að lesa meira.

    Kærar kveðjur
    Olga Björt
    www.olgabjort.com

    SvaraEyða

Skrifa ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.