Sól í dag og sunnan vindur. Litli bróðir og nágranni hefur drifið sig út í morgun og flaggað í hálfa eins og fánareglur segja til um. Nágranninn á stórbýlinu heldur ekki daginn heilagan, en stendur í skítkeyrslu sem þýðir að hér eru ekki opnaðir gluggar í dag.
Hér hefur hljómað kirkjuleg tónlist í allan morgun úr útvarpi og tölvum. Jóhann Ólafur er að sinna nýjasta áhugamálinu sínu. En hann byrjaði (loksins) að syngja í kór í haust þegar ég dró hann með mér í kirkjukórinn. Hann er auðvitað búinn að finna tölvuforrit sem spilar allar raddir þannig að hann slær inn allt sem við syngjum og æfir sig í tenórröddum daginn út og inn. Gaman að því.
Í gær fórum við sem oftar í Hof , núna til að hlusta á Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt Ungsveit sinfóníuhljómsveit Íslands flytja meðal annars "Myndir á sýningu" eftir Mussgorskí. Halldór Rafn var meðal sex hornleikara í sveitinni. Þetta var mjög gaman og ég uppgötvaði að það er ár og dagur síðan ég hef farið á svona sinfóníutónleika.

Það sem þið eigið gott að hafa fengið Hof. Held að endi með að allir verði sáttir við húsið, það voru jú margar óánægjuraddir í upphafi. Hlakka verulega til að skoða húsið í sumar.
SvaraEyða