Núna eru rétt tvö ár síðan hann elsku pabbi minn dó, en hann lést 17. apríl 2009. Þessi fallegi sálmur Kristjáns Vals var sunginn við útförina. Lagið er eftir Händel.
"Í minningu þeirra allra sem urðu að fara á undan heim".
Dagur er nærri
Lascia ch´io pianga
Dagur er nærri.
Dýrð þín um breytir
myrkri í morgun
með ljós og líf.
Sem ljúfur ómur
frá eilífð þinni
er þitt orð um frið.
Þungt hvílir sorgin
á sálu og lífi.
Lít til mín Drottinn
með líkn og náð.
Dagur er nærri.
Dýrð þín um breytir
myrkri í morgun
með ljós og líf.
Þýðing: Kristján Valur Ingólfsson

Ummæli
Skrifa ummæli