Sunnudagskvöld, þriðji í aðventu, jólafundur hjá kvenfélaginu.
Ég fékk ekki möndluna, því miður. En fékk að láta ljós mitt skína. Las jólasögu og smávegis frá eigin brjósti um jólaundirbúninginn. Játaði m.a. að ég væri ekki farin að skrifa jólakortin. Sem er alveg satt. Ég hef svosem engar sérstakar áhyggjur af því, nema bara þessum sem þurfa að fara til útlanda.
Við erum enn að strekkja við að taka myndir af börnunum og þó svo að við hefðum tvær myndavélar í takinu þegar við fórum í jólamyndatökuna á dögunum er eiginlega engin nothæf mynd af liðinu. Það er litli prinsinn sem kemur verst út er annaðhvort í fýlu eða grettukeppni. JÓH hefur meiri áhyggjur af þessu en ég. Enda bíð ég líka bara eftir hönnuðinum núna. Ég stakk upp á því að við sendum bara mynd af sumarbústaðnum í staðinn fyrir börnin, en það féll í frekar grýttan jarðveg.
Við álpuðumst í bæinn (Akureyri) í gær, sem aldrei skyldi verið hafa. Það viðraði sýnilega vel til ferðalaga og bærinn fullur af fólki, það var ekki viðlit að fá bílastæði við Glerártorg og Hagkaup var eins og á Þorláksmessu. Ég þekki verslunarfólk hér í bæ sem hélt að um síðustu helgi hefði hámarkinu í jólaversluninni verið náð, en þessi toppar það víst alveg.
Og ég sem er barasta ekki farin að velta fyrir mér jólagjöfunum einusinni (nema þessum heimatilbúnu).
Frekar ánægð með sjálfa mig. Ég er nánast alveg hætt að taka með mér heimavinnu en um helgina var ekki undan því komist, það varð að fara yfir próf. Mér tókst líka að ganga frá námsmati í öllum bekkjum sem ég kenni textíl og fer því róleg í háttinn.
Svo þarf ég að vera með kaffi á kennarafundi á morgun (ekki ein til allrar hamingju). Tvíburarnir sáu um baksturinn í kvöld þegar ég fór á jólafundinn og það tók á móti mér þessi ilmandi brauðlykt þegar ég kom heim. Þannig að það gekk nú allt saman vel.

Ummæli
Skrifa ummæli