Fara í aðalinnihald

raunir stekkjarstaurs


Þetta er nú aldeilis fín mynd og segir býsna margt um þroska listamannsins sem er rétt að verða 5 ára. (eftir þrjár vikur eða þar um bil).

Í gærmorgun stökk hann á fætur þegar ýtt var við honum og rauk út í glugga og hvað haldiði að Stekkjarstaur hafi komið með??? Þetta fína litabox með vaxlitum.

Litli drengurinn fór glaður og ánægður á leikskólann. Seinna um daginn labbaði hann heim til afa með stóru systur sinni og sagði afa auðvitað frá fínu litunum sem hann fékk í skóinn.

Þá varð afa að orði: " Þá geturðu nú aldeilis málað á veggina heima hjá þér"! Til skýringar verður að geta þess að afi er ákaflega stríðinn og man vel eftir því þegar elsta dóttirin hjólaði ganginn endilangan með lit í annarri hendinni og teiknaði á veggina allt sem henni þótti fallegast.

Litli drengurinn er skynsemdarbarn. Þegar hann kom heim til sín fór hann beina leið inn í stofu með litaboxið og teiknaði þessa fínu mynd af systur sinni á miðjan vegg. Það vantar á hana hárið en það er líklega vegna þess að fyrirmyndin sá til hans.

Mamma hringdi snarlega í afa og skammaði hann svolítið en hann hló svo mikið að heyrðist á næstu bæi. En mamma er enn að velta því fyrir sér hvort það sé hægt að ná þessu listaverki af eða hvort hún eigi bara að slá utan um það ramma og leyfa því að hanga.

Það er ekki á dagskránni að mála veggi, enda erum við lítið fyrir framkvæmdir í desember.

Litli drengurinn ætlar samt ekki að verða listamaður hann ætlar að skrifa bækur þegar hann verður stór eða þegar hann er búinn að læra að lesa.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.