

Danskt miðaldapar í dansi fyrst en síðan eftir nokkur átök og sverðaglamur hafði valkyrjan, karlrembuna undir. Og varð hann að biðjast afsökunnar á niðrandi orðum sem hann hafði um kvenhlutverkin.
Við mamma keyptum okkur ölkönnur af danskri sölukonu, smökkuðum kjötsúpu, hlustuðum á kórsöng og fengum leiðsögn um svæðið á Gásum en þar voru miðaldadagar um helgina, tjaldað hafði verið yfir nokkrar búðatóftir og margt að skoða. Sveitungar mínir voru að sjálfsögðu mættir. Fjölskyldan í Kristnesi, Guðrún og Jón á Stekkjarflötum og fleiri. Ég fékk einmitt vattarsaumsnál úr beini (eða horni) hjá Guðrúnu.
Mjög skemmtilegt og gaman að hugsa sér hvernig lífið hefur verið þarna að sumrinu á 13. öld.
Ummæli
Skrifa ummæli