Fara í aðalinnihald

Veðrið !!!

Eftir að hafa dvalið í sumarhúsi í viku í Hveragerði í misjöfnu veðri, svona eins og gengur og búin að vera heima í nokkra daga hef ég komist að niðurstöðu.

Munurinn á veðrinu í á Suðvesturhorninu og hérna á Norðurlandi er sá að ef að þú spyrð Reykvíking hvernig veðrið sé, er það ÖMURLEGT en aðspurður svarar Norðlendingurinn aldrei öðru en að það sé gott veður. Alveg sama hvernig það er.

Gott veður eða vont, það er bara spurning um hugarfar.

Hér "veit" fólk að veðrið er alltaf gott en á íbúar á Suðvesturhorninu er strax í startholunum í byrjun júní og ef að það kemur dropi úr lofti í meir en tvo daga í röð er sumarið ónýtt.

Ég þurfti að skreppa í bæinn snemma í morgun og útvarpið í litla bílnum er orðið svo lélegt að maður setur bara á stöðvaleit og svo er beðið eftir að eitthvað heyrist.
Heyrði tal tveggja á einhverri útvarpsstöðinni og það var veðrið í Reykjavík, nokkuð lygnt í morgunsárið og hiti um ellefu stig á celsius. Ellefu gráður og það er kominn miður júlí sagði stúlkan í hneykslunartón. Mig langaði bara að benda á að meðalhiti í júlímánuði í R-vík er nákvæmlega 11°C.

Það er að vísu þannig að maður opnar varla útvarp þessa dagana svo að ekki sé verið að þusa um leiðinlegt veður, litla sölu í bikínum, grillmat og tjöldum og að þjóðin sé á leiðinni til sólarlanda.

Kveðja úr "sólinni" fyrir Norðan

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.