Bloggleysi síðustu viku stafar af því að við fjölskyldan skelltum okkur frekar óundirbúið í sumarbústað í síðustu viku. Fyrir tæpum þremur vikum fannst okkur allt í einu alveg ómögulegt að fara ekki neitt í sumar. JÓH fór að leita á netinu og við höfðum upp úr krafsinu viku í Ölfusborgum í bústað sem Félag bókagerðarmanna á en við leigðum af Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri.
Ég kann varla við að segja hvað við borguðum fyrir vikuna því það er í allt öðrum verðflokki en ég á kost á í mínu stéttarfélagi og þá meina ég ódýrara.
Bústaðurinn kom okkur skemmtilega á óvart, allt til alls og þó plássið væri ekki mikið fór bara vel um okkur. Meira að segja uppþvottavél. Pabbi og mamma voru hjá okkur um helgina og vikan fór svo í það að liggja í leti og borða góðan mat. Ég hef aldrei áður komið í Ölfusborgir og get alveg mælt með þessum stað. Þó að það sé stutt á milli húsa er gróðurinn svo mikill að maður verður ekki var við nokkurn mann.
Við komum heim á föstudagskvöldið og ég er ekki alveg búin að ná mér eftir helgina. Bakaði kleinur á laugardagskvöldið fyrir sveitamarkaðinn sem var í gær og fór svo á fætur klukkan sex í gærmorgun til að fara Eyjafjarðarhringinn. Þegar ég kom heim um hádegi dreif ég mig með kleinurnar úteftir og þó að það hafi verið hálf hráslagalegt var heilmikið af fólki og ég seldi allar kleinurnar.
Ég fór í bað þegar ég kom heim og sofnaði í baðinu.
Í morgun fór ég aðeins seinna á fætur og fór með hóp af Englendingum í Laufás og Goðafoss. En ég þarf að fara fyr að sofa þegar ég er að fara eitthvað svona snemma.
Nú ætla ég að vera heima næstu daga. Reyna að klóra eitthvað í garðinum sem er að verða ansi, hmm...
Jóhann setti allar myndirnar úr ferðinni inn á fartölvuna en ég ætla nú að setja nokkrar hérna inn ef mér tekst að ná í þær.

Ummæli
Skrifa ummæli