Þegar allt um þrýtur fer ég að horfa á American Idol endurteknar endursýningar á ITV. Það virkar vel með prjónaskapnum því maður þarf ekki að horfa neitt mjög mikið.
Ég komst yfir ansi skemmtilega bók á dögunum sem heitir Vettlingar og fleira. Allar uppskriftir hannaðar fyrir plötulopa og að mestu í sauðalitunum. Getur ekki hentað mér betur. Ég er búin að prjóna eina vettlinga og þæfa og er að fara að byrja á öðrum. Meðfram er ég að prjóna vettlinga úr Tove sem á líka að þæfa.
Svona til að kóróna sjónvarpsglápið hjá mér er JÓH að munda sig með penslilinn og er að mála meðfram loftinu í stofunni en við (lesist hann (ég er svo ansi slæm í bakinu ehe..)) ætlum að renna eina umferð yfir loftin um leið og við málum ganginn.
Þetta (loftið) þarf eiginlega að vera búið fyrir laugardaginn en þá verður auðvitað Júróvisjónpartí.
Að sjálfsögðu verður maður að reyna að hafa gaman af þessu.

Ummæli
Skrifa ummæli