Ég fletti upp í gömlum færslum hjá mér og sá að pirringur dagsins er síður en svo nýr á nálinni. Við sátum hérna úti í blíðunni með seinnipartskaffið þegar dró fyrir sólu og súrnaði í augum. Sveitungi minn í framfirðinum notaði sunnanvindinn í dag til að kveikja í skurðbökkum sér til skemmtunnar. Í gær vorum við svo heppin að brennuvargurinn var norðan við okkur en óheppnari íbúar Svalbarðsstrandar og Akureyrar.
Ég gat ekki á mér setið og hringdi í lögregluna og ræddi við afar skilningsríkan lögreglumann sem ráðlagði mér að setja mig í sambandi við sýslumannsembættið því þar fá menn leyfi fyrir sinubrunum.
En núna sitjum við inni búin að loka dyrum og gluggum og rífa allan þvottinn af snúrunni. Það er ennþá tuttugu stiga hiti úti og sólskin en því miður er ekki hægt að njóta þess meir í dag. Nema það komi norðanátt.
Arrrrrggg.....

Ummæli
Skrifa ummæli