Fyrir tveimur mánuðum síðan týndist myndavél heimilisins. Eða var það kannski einhvern tíman í janúar. Ég hef svosem ekkert sérstaklega verið að leita að henni. Veit að hún er hér einhversstaðar.
Við skruppum til Bilbaó á dögunum og þegar til átti að taka fannst myndavélin ekki. Við erum búin að standa í framkvæmdum og tiltektum og búið að endurraða á öllum líklegum myndavélargeymslustöðum í húsinu að undanförnu. Þrátt fyrir nokkra leit fnnst hún ekki. Við þurftum því að reiða okkur á vináttu ferðafélaga okkar um myndatökur og getum ekkert kvartað yfir því.
Ég var að vísu farin að hallast að því að myndavélin væri endanlega týnd og tröllum gefin. Því þó ég finni flest allt aftur sem ég týni þá kemur það fyrir að hlutir glatast að eilífu (til dæmis armbandsúrin mín tvö sem ég hef týnt á undanförnum árum).
Ég var svo að barma mér yfir þessu óláni í huganum áðan, er að fara í hvalaskoðun á morgun og finnst heldur skítt að geta ekkert myndað.
JG er áhugasamur myndasmiður og tekur gjarnan myndir af kettinum eða andlitinu á sér. Þegar ég var búin að fá alveg nóg af fingraförunum hans í myndavélinni lét ég hana á stað þar sem ég var viss um að hann rækist ekki á hana. Þetta hefur svona verið að rifjast upp fyrir mér en ég er búin að margleita í öllum efri hillum/skápum í húsinu.
Svo rann allt í einu upp fyrir mér ljós áðan og ég uppgötvaði að faldi hluturinn væri ekki fugl heldur líklega fiskur. Og það var alveg rétt hjá mér (verst að úrið mitt var þar ekki líka, en það lagði ég frá mér á góðum stað fyrir nokkrum dögum...).

Ummæli
Skrifa ummæli