Það er kominn tími til að láta heyra frá sér aftur. Eftir stutt skrepp til R-víkur í vikunni og fermingarveislu í Borgarfirðinum í bakaleiðinni áttum við fjölskyldan rólegan dag á föstudaginn langa. Svona fram undir kvöldmat en þá datt okkur í hug að skreppa í Mývatnssveitina! Fórum svo við fjórða mann, slepptum kvöldmatnum en fengum okkur bara pulsu og kók í nesti á leiðinni.
Í staðinn fyrir að eiga rólegt kvöld heima í gærkvöldi brunuðum við semsagt austur yfir heiðar alla leið í Skjólbrekku og fórum á tónleika með Ljótu hálfvitunum. Í stuttu máli sagt erum við með strengi í hláturvöðvum og héldum aftur heim á leið um miðnættið glöð í sinni og hjarta.
Okkur leist nú ekki meira en svo á í upphafi. Við vorum auðvitað tímanlega á ferðinni og komin á svæðið rúmum hálftíma áður en átti að byrja. Þrír bílar fyrir utan og þegar við komum inn sátu fjórir þungbúnir Þingeyingar við borð aftast í salnum. Hm... Við völdum okkur sæti í þriðju sætaröð fyrir miðju og komum okkur vel fyrir Svo fór nú að tínast inn fólk og röðuðu menn sér samviskusamlega eins aftarlega eins og hægt var einnig er hliðarsalur við salinn þar sem voru borð. Þegar þau sæti voru að verða uppurinn stóð fólk vandræðalegt (að okkur fannst) og gaut augunum á sætaraðirnar í salnum og það leið dágóð stund þangað til nokkur áræddi að skella sér einhversstaðar í námunda við okkur. Það þarf vart að taka fram að við könnuðumst ekki við nokkurt andlit og áttuðum okkur smá saman á því að við vorum hér komin í aðra sýslu og engir aðrir Eyfirðingar sýnilega lagt í það að keyra austur. Á endanum varð salurinn auðvitað fullur og hljómsveitarmeðlimirnir tíndu fram alla stóla sem þeir fundu í húsinu.
Tónleikarnir sjálfir voru alveg frábærir og verður ekki lýst með orðum.
Í dag eru aftur rólegheit hérna í sveitinni. Við JG skruppum í sund í góða veðrinu. Einkadóttirin er á leiðinni heim með rútunni en hún varð eftir í Borgarnesi í fyrradag. "Nágranninn" er kominn í heimsókn að horfa á leik og unglingarnir eru enn í rúminu (klukkan er farin að ganga tvö). Semsagt venjulegur laugardagur hérna í sveitinni.
Ég verð að fara að blogga meira/oftar.

Ummæli
Skrifa ummæli