
Harry Potter var mættur hér á laugardagsmorguninn. Ég laumaðist til að lesa fyrstu 4 kaflana á meðan Halldór var í vinnunni og náði svo bókinni í gærkvöldi og kláraði hana í nótt!
Nú eru þeir bræður báðir farnir í vinnuna svo ég ætla að lesa aðeins betur yfir þá kafla sem mér fannst skemmtilegastir - og eða erfiðastir.
Ég hef alltaf heillast af þessum bókum og þær eru til hér á heimilinu bæði á ensku og íslensku. En ég hef líka alltaf verið hrifin af ævintýrum og varð ekki fyrir vonbrigðum með lokabókina.
Ummæli
Skrifa ummæli