Fara í aðalinnihald

Sumarfríhíí....


Sólríkur föstudagur þegar Grand Princess lá við bryggju á Akureyri.

Ekkert sérstaklega fallegt skip utanfrá séð finnst mér, brúin er eins og einhverskonar æxli framan á yfirbyggingunni. Stutt og hátt og ristir víst ekki nema um fjóra metra.

En það var voða gott veður og Ameríkanarnir sem ég fór með austur að Goðafossi og síðan í Laufás voru glaðir og ánægðir og gáfu mér nokkra dollara í þjórfé að skilnaði.
Í morgun voru það Spánverjar á sama rúntinum og en spænskukunnáttan takmarkast því miður við "hola, cafe uno, por favor, vino tinto & vino blanco". Þetta dugar að vísu nokkuð vel en ekki þegar þarf að tjá sig um landbúnað á íslandi og efnahagsmál. Þannig að í svoleiðis tilfellum fær maður "millistykki" með sér eða öðru nafni túlk. Ég er búin að fara í tvær ferðir með "millistykki" og hef verið svo heppin að hafa hafa haft huggulega karlmenn með mér í bæði skiptin.
Það er samt miklu skemmtilegra að vera í beinu sambandi við farþegana. Núna koma nokkrir dagar í uppihaldi og þá er bara að fara í listann yfir verkefni sumarsins og byrja að krossa við. Ég er þó búin að hafa það af að gera stórhreingerningu á eldhúsinu og búrinu (henti meira að segja kassa af efstu hillu sem er búinn að þvælast fyrir mér síðan við fluttum!!!).
Ég hafði það af að liggja í sólbaði smá stund í gær, með sólgleraugu og gamlan róman (Teresa Charles) fyrir augunum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.