Skrapp óvænt með þjóðverja austur að Goðafossi seinnipartinn í gær. Þá kom hin langþráða rigning loksins hérna við Eyjafjörðin. Ég hef aldrei lent í því að vera á áætlun við fossinn fyrr en fólkið rigndi niður. Þó að það væru allir vel búnir og að sjálfsögðu með regnslár. Það var líka svolítið skrítið að tala um birtu allan sólarhringinn þegar úti var svo þungbúið að það var hálf skuggsýnt. Svo stytti bara upp í gærkvöldi og í dag er aftur kominn heiður himinn (eða svo til). Var með sjálfbjarga túlk sem var búin að koma til Íslands áður hún fór nokkuð rétt með en bætti stundum við eins og þegar hún fór að segja frá hvalkjötsáti en var að lýsa því hvernig við verkum hákarl. Þá gat ég ekki á mér setið og leiðrétti hana en stúlkukindinni fannst ekki allur munur á.
Verð líka að játa að ég fór aðeins vitlaust með stærð bílaflotans þegar við ókum Hjalteyrargötuna fram hjá höfuðstöðvunum ég held að rúturnar séu fleiri en ég nefndi ehe....
Verð líka að játa að ég fór aðeins vitlaust með stærð bílaflotans þegar við ókum Hjalteyrargötuna fram hjá höfuðstöðvunum ég held að rúturnar séu fleiri en ég nefndi ehe....
Ummæli
Skrifa ummæli