
Meðan naglasúpan mallar á eldavélinni setti ég nokkar myndir inn á tölvuna og rakst þá á þessar litförgru berja og sveppamyndir sem ég tók úti í Svarfaðardal um daginn. Fann þar auk berjanna þennan fína berserkjasvepp og beitilyngið er til skrauts um alla móa.
En naglasúpan, sem er örugglega að verða soðin, er að meginhluta krækiberjahrat, sólber og vatn. Til að hafa eitthvað óvænt með þá setti ég eitt epli og skellti svo nokkrum eldrauðum reyniberjum saman við.
Það verður fróðlegt að sjá og bragða útkomuna en þetta á að verða hlaup í fyllingu tímans. Eða kannski það fari allt í ruslið - hvur veit.
Ummæli
Skrifa ummæli