Fara í aðalinnihald

Sunnudagsmorgun

Hér gengur lífið sinn vanagang þessa dagana. Það er búið að vera mikið að gera undanfarnar vikur og er ekkert lát á. Maður verður svo að reyna að slaka pínulítið á um helgar. Láta eftir sér að fara ekki almennilega á fætur fyrr en um hádegi. Lesa blöðin í rúminu og sötra te eða lúra með prjónana fyrir framan sjónvarpið.
Öll fjölskyldan er heima, nema JG sem dreif sig út að hjóla rétt áðan. JÓH er úti í bílskúr. Inga Hildur í sturtu og í unglingunum hef ég ekki heyrt enn. Það heyrðist í farsíma hjá öðrum hvorum þeirra rétt áðan. Ég held að það sé verið að reyna að vekja í ræktina eða sund.
Ég er búin með eitt verkefni af lista dagsins og sendi nokkra pósta áðan en við erum að undirbúa haustfund sem á að vera um næstu helgi. Það er kvenfélagið altsvo. Annað verkefni dagsins er að ljúka við að lesa texta úr Eddukvæðum og byrja á verkefni sem þarf að skila á þriðjudaginn. Ég skráði mig í einn íslenskuáfanga í KHÍ í fjarnámi og verkefnaskil valda mér svitaköstum þessa dagana. Ekki það að þetta gangi eitthvað illa öðru nær. Síðan þarf ég að baka smávegis fyrir morgundaginn með kaffinu í vinnunni. Ég ætla líka að gera eitthvað fleira í dag en man það ekki í augnablikinu. Þetta er fyrir utan að fara út og hreyfa sig og fara í kaffi til mömmu, ganga frá þvotti og ákveða hvað á að vera í kvöldmatinn.

Í gærmorgun drifum við Þorgerður okkur snemma út á Bjarg og fórum í tvöfaldan tíma. Fyrst í body balance og síðan í venjulegan lífstílstíma. Við vorum frekar góðar með okkur á eftir en það er ekki laust við að ég sé með strengi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.