Gleðilega þjóðhátíð.
Páskarnir sýnilega löngu liðnir og síðustu tveir mánuðir skólaársins líka liðnir. Búið að skella í lás og sumarfríið blasir við.
Við ákváðum um páskana að byrja sumarið á því að fara í bústað og því er þjóðhátíðardeginum eytt í sól og blíðu á Suðurlandi. Fyrst farið var af stað á annað borð var pantaður KÍ bústaður í Heiðarbyggð. Við erum svo heppin að vera enn á ódýrara tímabilinu en annars er þetta það dýrasta sem hægt er að komast í hjá stéttarfélögum. En húsið er flott og allt til alls og rúmt um okkur smáfjölskylduna. Við erum bara með litla prinsinn með okkur, unglingarir eru uppteknir í vinnu og einkadóttirinn (hún er víst orðin unglingur líka), sem kom með okkur suður á föstudaginn, flaug heim í gærkvöldi til að skemmta sér á Akureyri á þjóðhátíðardaginn og mæta í vinnuna á morgun.
Núna liggjum við á meltunni eftir þjóðhátíðarlærið, sem á eftir að endast okkur í nesti heim á föstudaginn a.m.k. Kannski eigum við hjónakornin örlítið (bara smá) erfitt með að sætta okkur við að börnin er að verða fullorðin. Við erum til dæmis í ferðalaginu á sjö manna bílnum okkar. Sem getur verið kostur það þarf ekkert að velta farangri fyrir sér. Það er bara allt tekið með!!
Ég ætlaði að skella inn einni sólarmynd af JG með Heklu í baksýn en tölvan/tengingin hóstar e-ð á stærðinni.

Ummæli
Skrifa ummæli