Fara í aðalinnihald

JG og Hekla

Þjóðhátíðardeginum eyddum við í letimorgunmat en eftir að hafa horft á beina útsendingu frá Austurvelli var hellt á könnuna og nokkrar samlokur smurðar með kjúkling og grænmeti. Í nestistöskuna var líka sett súkkulaði, gúrkur og Kristal handa barninu og ferðbúin lögðum við af stað í þjóðhátíðarbíltúr austur í Þjórsárdal.
Stoppuðum við Skaftholtsrétt og fundum Laxárdalsdilkinn, síðan við Hjálparfoss og Þjóðveldisbæinn. Þar var okkur mjög pent ráðið frá því að fara upp að Stöng. Þar væri sóðalegt um að litast eftir helgina. þannig að við fórum til baka og eftir að hafa beygt af vegi við lítið áberandi skilti merkt gönguleiðir fundum við okkur notalegt skógarrjóður til að drekka hátíðar kaffi, pakkaði meira að segja nettum dúk í tilefni dagsins.
Myndin af JG er tekin uppi á Gaukshöfða en við skokkuðum þangað upp á leiðinni til baka.

JG er ekki eins góður í því að muna örnefni og dráttarvélartegundir en hann man þó að í Borgarfirði er fjallið hennar Þorgerðar. Þegar við komum niður af Holtavörðuheiðinni á föstudagskvöldið vildi hann vita af því þegar við sæum í fjallið hennar Þorgerðar og benti ég honum á Baulu þegar hún birtist og spurði um leið hvort hann vissi hvað fjallið héti. Ekki stóð á svari: "Þorgerður".

Ummæli