Fara í aðalinnihald

Blogg

Það er orðið svo langt um liðið síðan ég tjáði mig eitthvað hér inni að það þurfti að leggjast í rannsóknir til að finna lykilorð og notendanafn. Það kemur þó yfir mig annað slagið þessi þörf fyrir að skrifa eitthvað og það er eina ástæðan fyrir því að ég er ekki búin að loka þessu bloggi. Svo hef ég pínu gaman af því að deila með öðrum einhverju skemmtilegu úr hversdagnum. Að vísu er ekki hægt að gúgla bloggið mitt. Fólk þarf að muna það og því kannski ekki margir sem nenna að leita það uppi og því síður að lesa það. En gott og vel.

Ég hef samt engan áhuga á því að fara í annað bloggumhverfi sem fleiri hefðu aðgang að. Mér finnst þær umræður sem fara fram til dæmis á blog.is í flestum tilfellum vera fólki til minnkunnar. Þó ég hafi skoðanir á öllu og engu sé ég engan tilgang í því að viðra þær við aðra en þá sem ég vel að ræða við augliti til auglitis.

Og hananú....
Þá er það áfram fótboltinn. Ég held með Hollandi eða Spáni eða Króatíu (eru þeir kannski dottnir út...?)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.